SKILMÁLAR
s8.is („vefurinn“) er vefur á vegum félagsins S8 ehf., kt. 661005-1490 („við“). Hægt er að hafa samband í gegnum netfangið: s8@s8.is. Með notkun á vefnum samþykkir þú skilmála þessa og samþykkir að fara eftir þeim í hvívetna.
1. Almennt
Vefurinn okkar er aðgengilegur án endurgjalds. Við ábyrgjumst ekki að vefurinn eða efni hans verði alltaf aðgengilegt. Við kunnum að loka eða takmarka aðgengi að vefnum eða hlutum hans án fyrirvara.
2. Notkun á efni vefsíðunnar
Öll eignarréttindi, þ.m.t. hugverkaréttindi, sem tengjast vefnum og efni sem birtist á honum, tilheyra okkur eða leyfisveitendum okkar. Þessi réttindi eru vernduð skv. viðeigandi lögum, þar á meðal höfundarréttarlögum og gildir sá réttur um allan heim. Allur slíkur réttur er áskilinn.
Notendum vefsins er eingöngu heimilt að nota efni sem birtist á honum til persónulegra nota. Óheimilt er að nota efnið eða hluta þess í viðskiptalegum tilgangi án leyfis frá S8 ehf eða leyfisveitendum S8.
Óheimilt er að afrita, breyta, fjölfalda, búa til afleidd verk, endurútgefa, hlaða niður, birta, senda eða dreifa efninu á vefnum í hvaða formi eða miðli sem er eða með hvaða hætti sem er. Staða okkar sem höfunda efnis á vef okkar skal ávallt sérstaklega tiltekin við notkun á efninu.
3. Upplýsingar á vefsíðunni
Allt myndefni er birt með fyrirvara; byggingarnefndarteikningar gilda. Lýsingar á eignum, þ.m.t. upplýsingar um stærðir, innréttingar, búnað og aðra eiginleika eru birtar með fyrirvara um villur og breytingar á byggingartíma. Skilalýsingar og bygginganefndarteikningar gilda.
4. Við berum ekki ábyrgð á vefjum sem við vísum til
Vefur okkar getur innihaldið tengla á vefsvæði annarra aðila. Slíkir tenglar eru eingöngu veittir til upplýsingar og hagræðis og ætti ekki að túlka sem samþykki okkar á þeim vefsvæðum eða upplýsingum sem vísað er til. Við berum enga ábyrgð á innihaldi vefsvæða þriðju aðila.
5. Ábyrgð
Notkun á vefnum er alfarið á ábyrgð notandans. Vefurinn er birtur án ábyrgðar af nokkru tagi.
Við berum ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða í tengslum við:
- notkun á, eða því að geta ekki notað, vefsíðu okkar; eða
- notkun á eða trausti á efni sem er birt á vefsíðu okkar.
- missi hagnaðar, sölu, viðskipta eða tekna;
- truflun á rekstri;
- tap á viðskiptatækifærum, viðskiptavild eða orðspori; eða
- hvers kyns óbeinu eða afleiddu tjóni.
6. Persónuupplýsingar og vafrakökur
Vefurinn notar vafrakökur (cookies) til að safna og greina upplýsingar um notkun og virkni vefsins, til að geta notað lausnir frá samfélagsmiðlum og til að bæta efni og birta viðeigandi markaðsefni.
7. Engin ábyrgð er borin á vírusum
Við ábyrgjumst ekki að vefsíða okkar sé ávallt laus við villur eða vírusa. Óheimilt er að misnota vefsíðuna til að dreifa vírusum eða öðru efni sem er tæknilega skaðlegt eða óviðeigandi.
8. Ágreiningur
Um skilmála þessa, efni þeirra og gerð fer eftir íslenskum lögum. Aðilar sammælast um að íslenskir dómstólar hafi lögsögu í deilumálum.
9. Breytingar á þessum skilmálum
Við kunnum frá einum tíma til annars að breyta skilmálum þessum. Allar breytingar sem kunna að verða gerðar munu taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið birt á vefnum.