S8-Sameign
Reiknivélin
Berðu saman kosti og áttaðu þig á hvað felst í því að kaupa íbúð í sameign
Hér er reiknivélin okkar. Hún er ætluð til að aðstoða þig við að bera saman mismunandi kosti og átta þig á hvað felst í því að kaupa íbúð í sameign.
Hvað er S8-Sameign?
Sameign er ætlað að auðvelda íbúðarkaup með því að fresta greiðslu á allt að fjórðungi kaupverðsins. Útborgun, lántaka og greiðslumat miðast við 75% af kaupverðinu, en allt að 25% eignarhlutur verður eftir hjá S8-Sameign.
Samhliða kaupsamningi gerir þú leigusamning við S8 um hlut S8 í íbúðinni. Leigan er verðtryggð: fyrstu 3 árin er hún 3,5% á ári af hlut S8, eða engin ef íbúðin er keypt á uppsettu verði. Eftir 3 ár hækkar leigan í 6,5% á ári og helst þannig þar til þú kaupir hlut S8.
Í 10 ár frá undirritun kaupsamnings áttu rétt á að kaupa hlut S8 hvenær sem er. Hagkvæmast er að eignast íbúðina að fullu innan 3 ára, því eftir það greiðir þú bæði hærri leigu og markaðsverð fyrir hlutinn.
Tímabundið tilboð: 0,0% leiga í 3 ár
Gerðu tilboð í íbúð í Hlíðarhorni. Á uppsettu verði fylgir 0,0% leiga í 3 ár — og þótt tilboðið þitt sé aðeins undir því, skoðum við það.
Dæmið við afhendingu
Greiðslubyrði á mánuði
0,0% leiga í 3 ár Valið
3,5% leiga í 3 ár
Forsendur
Ef íbúðin er keypt á uppsettu verði (eða með samkomulagi við S8-Sameign) er leigan engin fyrstu 3 árin, annars er hún 3,5% af hlut S8 fyrstu 3 árin og 6,5% eftir það, hvort tveggja verðtryggt. 3,5% leiga jafngildir u.þ.b. 0,3% af hlut S8 á mánuði.
Verðtryggt lán: greiðslan er á föstu verðlagi og hækkar með vísitölu.
Dæmið klárað
Til þess að eignast íbúðina að fullu þarftu að kaupa hlut S8. Verðið ræðst af því hvenær þú kaupir og upphaflegum kaupsamningi.
✓ Hagstæðast · innan 3 ára kaupir þú hlut S8 á:
16.872.960 kr
Frá ári 4 greiðist 6,5% ársleiga af hlut S8 — 91.395 kr á mánuði (verðbætt) þar til hluturinn er keyptur.
Lánasamanburður
Sama íbúðin á 60.000.000 kr — tvær fjármögnunarleiðir bornar saman.
Þú kaupir 100%
Þú kaupir 75% + 25% hlutur S8
Verðtryggt lán: greiðslan er á föstu verðlagi og hækkar með vísitölu.
Lægri greiðslubyrði
64.451 kr á mánuði
Með 25% hlut S8 tekurðu 40.500.000 kr lán í stað 54.000.000 kr — afborgunin er 64.451 kr lægri á mánuði, um 773.413 kr á ári.
Forsendur (vextir, lánstími, verðbætur) eru stillanlegar í Forsendum.
Greiðslubyrðarhlutfall
Þú stenst greiðslubyrðarhlutfallið
Viðmiðunargreiðslan er 35,6% af nettólaunum þínum (hámark 40%).
Sjá útreikninginn á bak við hlutfallið
| Liður | Á mánuði |
|---|---|
| Viðmiðunargreiðsla skv. reglum Miðað við: vextir aldrei undir 3%, lánstími allt að 25 ár | 213.774 kr |
| Raunveruleg afborgun þíns láns Verðtryggt lán: greiðslan er á föstu verðlagi og hækkar með vísitölu. | 193.353 kr |
| Hámarksgreiðsla m.v. nettólaun 40% af 600.000 kr í nettólaun | 240.000 kr |
| Svigrúm Hámarksgreiðsla að frádreginni viðmiðunargreiðslu | 26.226 kr |
| Lágmarks nettólaun til að standast | 534.435 kr |
Viðmiðunargreiðslan getur verið önnur en raunveruleg afborgun lánsins þíns — í reglunum er t.d. miðað við annan lánstíma og vaxtagólf en gilda um lánið þitt.
Greiðslumat lánveitanda og önnur lánaskilyrði gilda einnig. Þetta er einfölduð viðmiðun, ekki lánsloforð.
Með S8-Sameign stenst þú greiðslubyrðarhlutfallið — með hefðbundnu láni stenst þú það ekki.
Af hverju er þetta hér? Þegar þú sækir um húsnæðislán ber lánveitanda að reikna greiðslubyrðarhlutfallið þitt samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands nr. 1077/2021 (með síðari breytingum): greiðslubyrði fasteignalána má að hámarki vera 35% af mánaðarlegum nettótekjum — 40% hjá fyrstu kaupendum — og hlutfallið reiknast af viðmiðunargreiðslu með vaxtagólfi (3% verðtryggt, 5,5% óverðtryggt) og hámarkslánstíma. Með S8-Sameign tekurðu 40.500.000 kr lán í stað 54.000.000 kr og hlutfallið verður umtalsvert lægra — það getur ráðið úrslitum um hvort dæmið gangi upp. Þetta er reiknuð viðmiðun — ekki greiðslumat.
S8-Sameign byggir á langtímatrú á íslenskum fasteignamarkaði. S8 heldur utan um 25% eignarhlut og fjárfestir þannig með þér — hagsmunir okkar og þínir fara saman hvort sem eignin hækkar eða lækkar.