Sameign
Með Sameign getur þú frestað greiðslum á 25% af verði íbúðarinnar í allt að 10 ár. S8 á þann hluta en þú þarft einungis að fjármagna 75% af kaupverðinu. Sameign er nýjung á íslenskum markaði sem auðveldar fjármögnun og lækkar greiðslubyrði verulega.
75% EIGN, 25% SAMEIGN, 100% ÖRYGGI
Hvað er S8-Sameign?
S8 ehf. sem byggingaraðili býður kaupendum að gerast meðeigandi þeirra að nýrri og glæsilegri íbúð í miðborginni með því að fresta greiðslu á 25% af kaupverði í 10 ár. Þetta er ný lausn á fasteignamarkaði, sem er til þess fallin að gera aðilum kleift að komast inn á fasteignamarkaðinn með auðveldari hætti. Í S8-Sameign leggur þú fram a.m.k. 10% af kaupverði íbúðar en S8 leggur til allt að 25%. Þannig skiptist eignarhlutur íbúðar á milli kaupanda og S8, þar til eignarhluturinn hefur verið gerður upp, með því að hann er keyptur til baka eða íbúðin er seld. Kaupandi hefur yfirráð yfir eigninni á sameignartímanum. Markmiðið er að gera kaup á íbúð að raunhæfum möguleika á einfaldan og sanngjarnan hátt en á sama tíma fjölga valmöguleikum fyrir þá sem eru nú þegar á fasteignamarkaði.

Hvaða íbúðir eru í boði?
S8-sameign er í boði hjá S8 ehf. fyrir allar íbúðir í Hlíðarhorni, 102 Reykjavík, glæsilegu fjölbýli á Hlíðarenda. Fjöldi íbúða er þegar tilbúinn til afhendingar og fleiri bætast við á næstu mánuðum. Íbúðirnar eru til sýnis á hlidarhorn.is og þar er auðvelt að bóka einkaskoðun með söluaðila. Þegar þú hefur valið réttu íbúðina er tilboðs- og samningsferlið einfalt og skilvirkt.
Íbúðirnar eru afhentar með vönduðum innréttingum, gólfefnum og tækjum, fullbúnar og tilbúnar til innflutnings.

Hvað kostar sameign?
Samhliða kaupsamningi gera viðskiptavinur og S8 leigusamning um 25% eignarhlut S8 ehf. og kauprétt á hlut S8. Hægt er að semja um að leigan greiðist mánaðarlega eða í heild við uppgjör þegar íbúð er seld eða kaupréttur er nýttur. Kjósi kaupandi að nýta kaupréttinn innan 36 mánaða frá því að eign er afhent mun S8 ehf. endurgreiða viðskiptavini greidda leigu á tímabilinu.
Upphæð leigunnar er 3,5% af fjórðungi S8 fyrstu 3 árin. Ef kaupréttur er ekki nýttur er leigan 5% fyrir allan tímann. Með þessari aðferð gerir S8 ehf. kaupendum kleift að fresta kaupum á 25% hlut í íbúðinni í allt að 3 ár án kostnaðar fyrir kaupanda.
Helstu kostir sameignar
Sameignarsamningur greiðir leiðina að nýrri og glæsilegri íbúð án aukinnar skuldsetningar við kaup.
Kaupandi þarf að lágmarki 10% eigið fé til að geta fest kaup á íbúð. Lánastofnun veitir lán fyrir allt að 65% af kaupverði ef kaupandi stenst greiðslumat.
Kaupandi getur búið án leigu vegna sameignar í 3 ár ef hann nýtir sér kauprétt og getur á þeim tíma nýtt kauprétt sinn á upphaflegu verði íbúðar með verðbótum án aukakostnaðar. Kaupandi getur einnig lagt fram hærra eigið fé og lækkað þar með skuldir sínar eða minnkað eignarhlut S8 ehf.
Hverjir geta nýtt sér S8-Sameign?
S8-Sameign hentar þeim sem hafa amk. 10% eigið fé og standast greiðslumat lánastofnana fyrir allt að 65% láni. S8 ehf. verður meðeigandi íbúðar að 25% þar til sameignarsamningur er gerður upp, annað hvort með nýtingu kaupréttar eða með sölu eignarinnar.
Hækkun, lækkun, sala
Hækkun á verði eignar vegna markaðsaðstæðna skilar sér í ábata á eignarhlut kaupanda að frádreginni uppsafnaðri leigu og eftirstöðvum fasteignaláns sé það til staðar. S8 ehf. fær jafnframt ábata af sínum eignarhlut. Lækkun á verði eignar vegna markaðsaðstæðna og sölu á þeim tímapunkti skilar sér í tapi hlutfallslega eftir eignarhlutföllum.
Hvað með viðhaldið?
Eins og í hefðbundnum fasteignaviðskiptum er daglegt viðhald íbúðar á ábyrgð kaupanda, þ.á.m. greiðsla húsfélagsgjalda. S8 ehf. tekur hlutfallslega þátt í kostnaði vegna framkvæmda sem samþykktar eru af húsfélagi til samræmis við lög um fjöleignarhús, en tekur ekki þátt í kostnaði vegna breytinga sem kaupandi ákveður sjálfur, svo sem vegna endurnýjunar innréttinga, málningarvinnu eða viðgerða umfram eðlilegt slit.
NÝJAR, BJARTAR OG VANDAÐAR
Eru þetta frábærar íbúðir?
Já, íbúðirnar í Hlíðarhorni eru frábærar. Þær eru vel skipulagðar, bjartar og með aukna lofthæð. Allar íbúðir eru búnar öflugu loftræstikerfi sem veitir fersku lofti um öll rými, síar frjókorn og svifryk og sogar matarlykt úr eldhúsinu. Innréttingarnar eru fjölbreyttar - sumar mjallhvítar, aðrar svartar og allt þar á milli - en allar óvenju vandaðar og vel hugsaðar. Góðar svalir, pallar eða þaksvæði fylgja öllum íbúðum. Íbúðirnar eru mjög misstórar, allt frá um 50m² íbúðum með einu svefnherbergi að næstum 150m² með 4-5 svefnherbergjum.

Má ég gera breytingar?
Breytingar sem ganga lengra en venjulegt viðhald þurfa samþykki S8 ehf. S8 getur þó ekki hafnað breytingum á íbúðinni nema gildar ástæður liggi fyrir. Allar framkvæmdir, sem og venjulegt viðhald, eru á kostnað kaupanda.
Hver er ábyrgð S8?
S8 ehf. er meðeigandi eignar til samræmis við eignarhlut en kaupandi hefur full umráð yfir íbúðinni. Kaupandi stendur undir öllum almennum gjöldum tengdum íbúðinni en S8 ehf. greiðir hluta af fasteignagjöldum í samræmi við eignarhlut.
Við hvern tala ég?
Starfsfólk S8 ehf. annast umsýslu og samskipti við kaupendur í S8-Sameign bæði fyrir og eftir kaup eignar. Kaupendur geta haft samband beint við fyrirtækið, í gegnum Hlíðarhorns verkefnið sjálft eða fasteignasala í samvinnu við verkefnið og S8 ehf. Starfsfólk og fasteignasalar leiðbeina um ferlið, samningsatriði og möguleg næstu skref í kaupferlinu.
Hver er samningstíminn?
Sameignarsamningur við S8 ehf. gildir almennt til 10 ára. Þú getur nýtt kauprétt þinn hvenær sem er á samningstímanum. Ef kaupréttur er nýttur innan 36 mánaða frá afhendingu eignar á kaupandi rétt á því að kaupa eignina á upphaflegu kaupverði að viðbættum verðbótum. Þá mun S8 ehf. endurgreiða kaupanda greiddar leigugreiðslur eða fella þær niður. Að þremur árum liðnum frá afhendingu eignar hefur kaupandi rétt á að kaupa hlut S8 ehf. á markaðsverði hverju sinni.
Hver á íbúðina með mér?
S8 ehf. sem byggingaraðili selur þér 75% af sinni eigin eign þannig að ekki er um sérstaka fjárfestingu að ræða. Ekki er um að ræða lausn með aðkomu sjóðs í stýringu fjármálafyrirtækis heldur beina sameign með byggingaraðila.
Hvernig fara kaupin fram?
Kaupandi kaupir eignina beint af byggingaraðila, S8 ehf, með því að leggja fram að lágmarki 75% af kaupverði eignarinnar. 25% af kaupverði verður eftir hjá S8 ehf.
Hvaða skjöl þarf að undirrita?
Fyrir utan venjulegt kauptilboð og kaupsamning eru undirritaðir tveir samningar vegna sameignarinnar:
1. Sameignarsamningur, sem skilgreinir réttindi og skyldur beggja aðila, þ.e. kaupanda og S8 ehf, og hvernig sameignarhaldinu er háttað.
2. Leigusamningur, sem fjallar um fullan afnotarétt kaupanda og tekur á greiðslum fyrir afnot og notkun eignarinnar á samningstíma.
Auk þess gefur kaupandi út sérstakt kvaðaskjal og tryggingarbréf til S8 ehf, til tryggingar efndum samkvæmt sameignar- og leigusamningi. Þannig eru bæði eignarhald og afnot skýr og gagnsæ fyrir alla aðila frá upphafi.
Get ég keypt hlut S8?
Kaupandi getur nýtt sér kauprétt sinn hvenær sem hentar á samningstímanum og tilkynnir það skriflega til S8 ehf. Tilkynning þarf að berast eigi síðar en tilgreind dagsetning er skv. samningi.
Má ég leigja íbúðina út?
Já. Kaupandi má leigja eignina út alveg eins og um hreina eign væri að ræða. Kaupandi heldur öllum leigutekjum en ber jafnframt fulla ábyrgð á eigninni á leigutímanum, þar á meðal viðhaldi, tryggingum og hugsanlegu tjóni.
Hvað gerist í lok samnings?
Ef kaupréttur hefur ekki verið nýttur að samningstíma loknum er samkomulagið gert upp. Kaupandinn getur þá valið a.m.k tvær leiðir:
Selt eignina og gert upp við S8 ehf. samkvæmt eignarhlutfalli.
Endurfjármagnað eignina og/eða nýtt annan sparnað og keypt hlut S8 ehf. að fullu.
Má ég endurfjármagna?
Þú getur endurfjármagnað fasteignalánið þitt hvenær sem er á samningstímanum, að undangengnu samþykki S8 ehf. S8 ehf. getur hins vegar ekki hafnað slíkri beiðni nema gildar og málefnalegar ástæður liggi þar að baki