Búseturéttur

Þú finnur draumaíbúðina í Hlíðarhorni og kaupir varanlegan búseturétt fyrir 15% af kaupverðinu. Búseturétturinn er þín eign þú býrð í íbúðinni eins lengi og þér sýnist með mánaðarlegu búsetugjaldi. Engin lán, ekkert greiðslumat og ekkert vesen!

BLANDA AF EIGN OG LEIGU

Hvað er S8-Búseturéttur?

S8 ehf. sem byggingaraðili býður kaupendum að kaupa búseturétt í nýrri og glæsilegri íbúð í miðborginni. Þetta er ný lausn á fasteignamarkaði, sem er til þess fallin að gera aðilum kleift að komast inn á fasteignamarkaðinn með auðveldari hætti. Í S8-búseturétti kaupir þú réttinn til að búa í nýrri íbúð með því að greiða 15-40% af kaupverði íbúðar og greiðir síðan mánaðarlegt búsetugjald. Upphæð búsetugjalds fer eftir keyptu hlutfalli af búseturétti og er vísitölutengt. Markmið S8 ehf. er að fjölga valmöguleikum fyrir þá sem vilja komast inn á fasteignamarkaðinn og gera kaup á nýrri íbúð að raunhæfum möguleika á einfaldan og sanngjarnan hátt.

mynd

Hvernig virkar S8-búseturéttur?

Þú kaupir réttinn til að búa í íbúð í Hlíðarhorni. Búseturétturinn er ótímabundinn afnotaréttur af íbúð og er einskonar millistig milli leigu og eignar. Búseturéttur kostar að lágmarki 15% af fasteignaverði íbúðar. Sem sagt: Búseturéttur er eins og leiga að því leyti að þú átt ekki íbúðina og greiðir mánaðarlega fyrir að búa í henni, en eins og eigið húsnæði að því leyti að búseturétturinn er þín eign og þú býrð í íbúðinni eins lengi og þér sýnist. Tilfinningin er eins og að búa í eigin húsnæði, ekki leiguíbúð

Að kaupa búseturétt

Þú skoðar íbúðir í Hlíðarhorni á vef verkefnisins eða í birtum fasteignaauglýsingum á vefmiðlum. Ef þér líst á einhverja íbúð hefurðu samband við okkur til að halda áfram. Þú gerir tilboð í búseturéttinn og þér er frjálst að bjóða upp í 40% búseturétt.

Við afgreiðum öll tilboð jafnóðum og þau berast. Ef S8 ehf. gengur að tilboði þínu er gengið frá kaupum, kvittað undir samninga og samið um afhendingardag eins og um bein kaup væri að ræða. Í síðasta lagi viku fyrir afhendingu hittumst við í íbúðinni og gerum lokaúttekt, þú færð að lokum lyklana og öll gögn sem fylgja íbúðinni, og ert komin/n á þinn stað!

Búsetugjaldið

Mánaðarlegt búsetugjald ræðst fyrir og fremst af stofnvirði íbúðarinnar og hlutfalli þíns búseturéttargjalds af þeirri upphæð. Innifalið í búsetugjaldinu er fjármagnskostnaður, fasteignagjöld og skyldutryggingar, hússjóður og gjöld vegna ytra viðhald hússins, og verðbætur. Búsetugjaldið er endurskoðað á 3ja ára fresti.

Búseturéttur er opinn öllum

Allir sem náð hafa 18 ára aldri geta keypt búseturétt hjá okkur.

Ekkert félagsgjald

Hjá S8 greiðir þú ekkert félagsgjald og tilboð eru afgreidd í þeirri röð sem þau berast.

Glænýjar, glæsilegar og vel búnar

Þú verður fyrsti íbúinn í nýrri og sérlega vandaðri íbúð sem er afhent fullbúin.

Get ég keypt íbúðina seinna?

Já. Þú mátt kaupa íbúðina að fullu hvenær sem er. Ef þú kaupir íbúðina innan þriggja ára frá gildistöku búsetusamningsins geturðu keypt íbúðina að fullu á verðbættu stofnverði íbúðar. Eftir það gildir markaðsverð að hámarki. Kaupi búseti íbúðina af búseturéttarsala er búseta heimilt að láta búseturéttargjald að viðbættum verðbótum í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs, ganga upp í kaupverð eignar.

Má ég selja búseturéttinn?

Búseturétturinn er þín eign en ekki er gert ráð fyrir að hann sé seldur á fasteignamarkaði. Þú getur hins vegar sagt upp búsetusamningi með 6 mánaða fyrirvara. Við lok samnings endurgreiðir S8 ehf. þér greitt búseturéttargjald verðbætt miðað við vísitölu neysluverðs. S8 ehf. getur ekki haft frumkvæði að sölu búseturéttar eða selt íbúðina án þíns samþykkis.

Hvaða íbúðir eru í boði?

Það eru 195 íbúðir í 10 byggingum í Hlíðarhorni - við Valshlíð og Haukahlíð í 102 Reykjavík. Þær koma á markað eftir því sem verkinu vindur fram og flestar þeirra eru í boði sem búseturéttaríbúðir. Best er að skoða þær fyrst á hlidarhorn.is, og hafa svo samband við okkur eða þær fasteignasölur sem eru í samstarfi við okkur til að bóka skoðun á einni eða fleiri íbúðum. Þegar þú ert búin/n að finna þá réttu er bara að hafa samband og við getum gengið frá samningi hratt og með litlum tilkostnaði.

mynd

Má ég leigja íbúðina út?

Það má framleigja íbúðina í samráði við S8 ehf. og ef nauðsyn krefur, t.d. vegna dvalar erlendis vegna vinnu eða náms. Skammtímaútleiga eins og Airbnb er ekki heimil.

Hvað gerist við skilnað, sambúðarslit eða andlát?

Við skilnað eða sambúðarslit þarf að ganga frá eigendaskiptum hjá S8 ehf. Eigendur þurfa ekki að mæta saman á þann fund. Við andlát erfist búseturéttur eins og hver önnur eign og geta erfingjar selt réttinn gegnum S8 ehf. eða tekið hann yfir og búið í íbúðinni.

Hver sér um viðhaldið?

Við skiptum með okkur verkum þegar kemur að viðhaldinu. S8 ber ábyrgð á öllu sem snertir ytra viðhald byggingarinnar - þak, gler, klæðningar, lagnir, lóð, sameign og slíkt. Þú sérð um að halda íbúðinni í góðu standi að innan, mála þegar þarf og gera smálagfæringar. Þegar kemur að stærri aðgerðum, s.s. gólfefnum, föstum innréttingum og innbyggðum raftækjum skiptum við kostnaði á milli okkar, enda má ekki fara út í slíkt nema í samráði við S8 ehf.

Tjón og tryggingar

Skyldutryggingar, s.s. bruna- og húseigendatrygging, eru hluti af mánaðarlega búsetugjaldinu. Aðrar tryggingar eru eftir þínu höfði, s.s. heimilistrygging og innbústrygging.