Bein kaup

Íbúðirnar í Hlíðarhorni má kaupa beint af byggingaraðila eða hjá samstarfsaðilum okkar.

Sameign

Sameign auðveldar fjármögnun til muna - þú færð frábæra íbúð og góða fjárfestingu en þarft einungis að fjármagna 75% af kaupverðinu.

NÝJASTA VERKEFNIÐ

Nýjar íbúðir
í Hlíðarhorni

Hlíðarhorn í 102 Reykjavík er nýjasta og stærsta verkefnið okkar: 195 vandaðar íbúðir í 10 samtengdum byggingum á frábærum stað í miðborg Reykjavíkur. Sala fyrstu íbúðanna hófst síðla árs 2025 og áætlað er að síðasta áfanga verði lokið haustið 2027.

Mynd af hlíðarhorns garðinum

195

fallegar íbúðir,
50-140m² að stærð

31

glæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni

11

íbúðir með sólríkum þaksvölum

Íbúðir S8

AUÐVELDARA AÐ EIGNAST ÖRUGGT HÚSNÆÐI

Kaup eða sameign

Til að auðvelda fólki að komast í öruggt og vandað húsnæði bjóðum við nýjan valkost til viðbótar við hefðbundin fasteignakaup: S8-SAMEIGN. Sameignarlausnin felst í því að þú fjármagnar einungis 75% af kaupverðinu á nýrri og vandaðri íbúð en við í S8 eigum 25% hlut í henni með þér í allt að 10 ár. Þú mátt kaupa okkar hlut hvenær sem er og eignast íbúðina að fullu. Við bjóðum þennan samning á einstaklega hagstæðum kjörum.

HAGKVÆMAR ÍBÚÐIR FYRIR KRÖFUHART FÓLK

Við byggjum vandað
íbúðarhúsnæði á besta
stað í bænum

Markmið okkar er að þjóna kröfuhörðum kaupendum sem vilja fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir á samkeppnishæfu verði. Við viljum að fyrsta flokks hönnun og vönduð vinnubrögð skili sér til kaupandans sem góð fjárfesting.

Öll heimili eru hátækniheimili

Allar íbúðir eru búnar þráðlausu neti sem m.a. er tengt öflugu loftræstikerfi sem veitir fersku lofti um öll herbergi.

Vandaðir innigarðar

Sameiginleg útisvæði eru sólrík og falleg, með fjölbreyttri aðstöðu fyrir afslöppun og leiki.

Fullbúnar við afhendingu

Við afhendum allar íbúðir fullbúnar með öllum innréttingum, eldhústækjum og gólfefnum.

S8 Sameign

Sameign er nýjung á íslenskum fasteignamarkaði en við sækjum í fyrirmyndir á Norðurlöndum. Hún auðveldar greiðslumat og fjármögnun, þar sem þú þarft aðeins að kaupa 75% hlut í íbúðinni.

Við bjóðum sérlega hagkvæman samning þar sem þú greiðir einungis 3.5% leigu af eignarhlut okkar í 36 mánuði. Leigan gengur upp í kaupverðið á eigninni ef þú nýtir kauprétt þinn á okkar hlut á þeim tíma. Ef þú kaupir eignina á uppsettu verði í upphafi bjóðum við þér að búa leigufrítt í henni í allt að 36 mánuði, eða þar til þú kaupir okkar hlut innan þess tíma. Eftir 36 mánuði greiðir þú 6.5% leigu af hlut okkar þar til sameignarsamningi lýkur eða eignin er seld.

Eldhús í íbúð S8

VÖNDUÐ EFNI OG ÞAULHUGSUÐ HÖNNUN

Nýjungar á íslenskum markaði

Við leggjum ríka áherslu á vandaða og vel hugsaða hönnun, fyrsta flokks frágang og vel valin efni og tæki. Við leitumst ávallt við að sameina hagkvæmni, útlit og notagildi þannig að kaupandinn fái fallega og þægilega íbúð sem endist um ókomna tíð með lágmarks viðhaldi. Mariner blöndunartækin frá Ítalíu eru nýjung á Íslandi – frábærlega hönnuð, vönduð og margverðlaunuð.

Umhverfisvænar lausnir eru í forgangi í öllum verkefnum S8. Við leggjum áherslu á góða umgengni á byggingarstað, veljum umhverfisvæn efni og umhverfisvottaða birgja þegar kostur er.

Traust afhending er lykilatriði í öllum byggingarverkefnum. Við stöndum við verkáætlanir og upplýsum viðskiptavini jafnóðum um hvers kyns breytingar sem geta orðið á byggingartíma.

Vönduð hönnun. Við veljum framúrskarandi arkitekta og verkfræðinga til að starfa með okkur í fasteignaverkefnum. Góð hönnun er undirstaða góðrar útkomu.

Örugg rafræn viðskipti. S8 er í fararbroddi í þróun rafrænna lausna sem gera fasteignaviðskipti einfaldari, þægilegri, hagkvæmari og öruggari. Lausnir sem við höfum átt þátt í að þróa - eCasa og eSigna - eru frábærar nýjungar á fasteignamarkaðnum.